á allt og alla...lala lalaaa la lala laaaa
Ótrúlega jólalegt og fallegt úti núna... bara verst að þurfa alltaf að vera að skafa af bílnum þegar maður þarf að komast á milli staða. Svo sé ég reyndar lítið út um gluggana hérna heima því snjórinn situr fastur á þeim... og ég nenni ekki út að skafa! Enda bara fín tilbreyting að sjá ekki út og að aðrir sjái ekki inn! hahaha
Annars keypti ég nokkrar gjafir í dag - bæði jóla- og afmælis

og fór svo niður í Borgartún 25 í kvöld - þar sem Straumur er til húsa og aðstoðaði aðeins við að undirbúa matarpakkaúthlutun morgundagsins.Setti kartöflur í poka, setti smjör og lax í kæli og sápur í poka... svona aðeins að aðstoða. Við vorum þarna e-ð um 10 manns héðan og þaðan, Kaupþingi, Ísal og og og ...fleirum fyrirtækjum.
Hafði svo hugsað mér að þrífa svolítið heima hjá mér.... en hahaha það tókst ekki.... tók samt til!

hitt kemur kannski á morgunn. Svo hafði ég nú líka hugsað mér að senda nokkur jólakort... en það gengur e-ð illa að komast í það.
Annars fékk ég einkunn númer 2 í dag - af fjórum! ...ég náði amk stæ

Einn sem fékk 10 (ekki ég) og einn sem fékk 8 (ekki ég heldur), einn sem fékk 7 (...hmm ekki ég sagði grísinn), ég var í stærsta hópnum (6 manna hóp)... algjört meðaltalsgella með heila 6! ...en ég minni ykkur þá bara á að ég fékk 9,5 í Financial Economics... ekki gleyma því

mohaha
Annars bara bið ég að heilsa ykkur - ætla að drífa mig í háttinn svo ég geti lyft aðeins áður en ég fer í vinnuna....
luv, B